Símamótið er nú hafið í Kópavogi og er þetta í 34 skiptið sem mótið er haldið. Þetta árið munu rúmlega 2200 stelpur frá 42 félagsliðum taka þátt í mótinu og munu þær spila 1312 leiki á meðan mótinu stendur. Mótið stendur yfir alla helgina og lýkur á sunnudaginn. Hægt er að fylgjast með úrslitum allra leikja og stöðu liðanna á www.simamotid.is