Three Lions er lag sem allir eru að syngja í dag en þar er sungið um að ‘fótboltinn sé nú að koma heim’.
Enskir stuðningsmenn syngja þetta lag mikið eftir frábæra frammistöðu Englands á HM í Rússlandi.
Lagið var gefið út árið 1996 fyrir EM sem haldið var í Englandi. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, lék þá fyrir landsliðið.
Southgate klikkaði á vítaspyrnu í tapi gegn Þýskalandi á mótinu er England datt úr leik eftir vítakeppni.
Southgate viðurkennir það að hann hafi ekki getað hlustað á lagið fræga í heil 20 ár.
,,Þetta er lag sem ég gat ekki hlustað á í 20 ár ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Southgate.
,,Það er þó gott að heyra að fólk sé að njóta þess að hlusta á það aftur í dag.“