Boeing 757 þota Icelandair, sem flogið var til Kaliningrad í Rússlandi í morgun, er nú á leið til landsins. Í vélinni eru leikmenn fótboltalandsliðsins, starfsmenn og stjórnendur KSÍ, fjölmiðlamenn og fleiri sem starfað hafa við Heimsmeistaramótið undanfarnar vikur.
Þeim til heiðurs verður flugvélinni flogið í lágflugi yfir höfuðborgarsvæðið fyrir lendingu á Keflavíkurflugvelli. Gera má ráð fyrir að flugvélin verði yfir borginni um kl. 20:00 í kvöld.