„Á fallegum sumardegi komu íbúar Djúpavogshrepps saman við Tankinn á Djúpavogi til að taka upp litla kveðju til karlalandsliðsins í fótbolta, sem er nú statt á HM í Rússlandi. Þetta var útkoman.“
Þetta segir í lítilli frétt á heimasíðu Djúpavogshrepps, en með fréttinni fylgir stutt – en algjörlega magnað – myndband sem sýnir íbúa hreppsins senda íslensku strákunum baráttukveðju.
Í raun þarf ekki að hafa mörg orð um myndbandið sem talar sínu máli.