Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður hjá Stöð 2 Sport, hrósar landsliðsmanninum Emil Hallfreðssyni í hástert. Emil átti mjög góðan leik í jafnteflinu gegn Argentínu en þurfti svo að gera sér að góðu að sitja á bekknum allan leikinn gegn Nígeríu.
Emil var hógvær þegar hann var spurður út í þetta á blaðamannafundi landsliðsins í gær og sagði að enginn leikmaður væri of stór til að vera á bekknum.
„Það var auðvitað fúlt að vera á bekknum, það er alltaf fúlt. Það var búið að ákveða þetta að fara í tvo framherja. Ég var klár í að koma inn ef það þurfti og klár í næsta leik af það þarf, það er enginn leikmaður hjá okkur of stór til að vera á bekknum,“ sagði Emil.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins lét hann vita nokkrum dögum fyrir leik og Emil tók því.
,,Hann kom til mín og ræddi þetta, þetta var tveimur dögum fyrir leik. Útskýrði það fyrir mér, það var taktísk breyting. Það er ekkert við því að segja, maður þurfti að vea klár ef kallið kæmi. Þetta gengur og gerist í fótboltanum, þetta er spurning að vera klár þegar kallið kemur. Nýta tækifærin, þetta getur komið fyrir hvern sem er að vera á bekknum.“
Hörður segist telja að Emil sé ákaflega vanmetinn leikmaður. Hann segir á Twitter:
„Held að menn séu loksins að sjá úr hverju Emil Hallfreðsson er gerður. Svör hans eftir að hafa setið á bekknum gegn Nígeríu bera gott vitni um það. Ég tel Emil vera einn vanmetnasta leikmann sem við höfum átt i landsliðinu frá upphafi.“