fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Eini markmaðurinn sem hefur ekki enn varið skot á HM er einn sá besti í heimi

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 25. júní 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David de Gea er að líkindum einn besti markvörður heims. Hann hefur sýnt það og sannað með spilamennsku sinni hjá Manchester United á undanförnum árum að fáir eru betri en hann þegar kemur að því að verja skot. Staðreyndin er þó sú að de Gea er eini markvörðurinn á HM sem enn hefur ekki varið skot á mótinu.

De Gea var í markinu þegar Portúgal og Spánn gerðu 3-3 jafntefli í einum skemmtilegasta leik mótsins til þessa. Cristiano Ronaldo skoraði öll mörk Portúgals í leiknum en svo vildi til að öll skot portúgalska liðsins fóru í markið. Spænska liðið vann svo Íran, 1-0, en í þeim leik átti íranska liðið ekki eina tilraun sem endaði á rammanum. De Gea hefur því spilað 180 mínútur á mótinu án þess að verja eitt skot.

Sá markvörður sem hefur varið flest skot í keppninni er Guillermo Ochoa, markvörður Mexíkó. Hann hefur varið 14 skot, eða 93,3 prósent þeirra skota sem hann hefur fengið á sig. Á eftir Ochoa er Kasper Schmeichel, markvörður Dana, sem hefur varið tíu skot. Okkar maður, Hannes Þór Halldórsson, er svo í hópi þeirra sem hafa varið níu skot ásamt Keylor Navas, markverði Real Madrid og Kosta Ríka, Ástralanum Matthew Ryan og Serbanum Vladimir Stojkovic.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Í gær

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?