Það verður fróðlegt að fylgjast með því í sumar hvaða leikmaður tekur með sér gullskóinn heim af HM í Rússlandi.
Harry Kane er nú markahæsti leikmaður mótsins eftir tvo leiki en hann hefur gert fimm mörk fyrir England.
Kane skoraði þrennu fyrir England í 6-1 sigri á Panama í dag en tvö af hans mörkum komu úr vítaspyrnu.
Þeir Cristiano Ronaldo og Romelu Lukaku eru í öðru sæti listanns en þeir hafa báðir gert fjögur mörk.
Tveir leikmenn hafa svo gert þrjú mörk en það eru þeir Denis Cheryshev hjá Rússlandi og Diego Costa hjá Spáni.
Hér má sjá markahæstu leikmenn mótsins til þessa.