Íslenska landsliðið er að hefja leik gegn Nígeríu á HM í Rússlandi en annar leikur riðlakeppninnar fer fram.
Ísland getur komist í frábæra stöðu með sigri í dag en liðið getur náð þriggja stiga forystu í öðru sæti riðilsins.
Það er mikil stemning í Volgograd í dag og eru að sjálfsögðu fjölmargir Íslendingar á leiknum.
Það vakti athygli fyrir leik að fáni ÍBV sást í stúkunni í Rússlandi ásamt íslenska landsliðsfánanum.
Það er aldrei að vita nema ÍBV hafi nælt sér í nokkra erlenda stuðningsmenn í dag!
Myndir af því má sjá hér.