Íslenska landsliðið mun spila virkilega mikilvægan leik á morgun er liðið mætir Nígeríu á HM í Rússlandi.
Strákarnir okkar eru í góðum gír í Volgograd en þeir æfðu í dag fyrir leikinn þýðingarmikla á morgun.
Ísland er með eitt stig í riðlinum fyrir leikinn eftir jafntefli gegn Argentínu en Nígería tapaði 2-0 fyrir Króatíu.
Það sáust bros á æfingasvæðinu í Volgograd í dag og virkaði hópurinn í góðum gír.
Hér má sjá myndir frá æfingu liðsins í dag.