Uppistandshópurinn Mið-Ísland hélt óvænt uppistand fyrir íslenska landsliðið í Rússlandi í fyrrakvöld. Strákarnir höfðu ekki hugmynd um að þeir ættu von á því að margir af vinsælustu grínistum þjóðarinnar væru að fara mæta á svæðið og kitla hláturtaugarnar.
Strákarnir voru því margir hverjir nokkuð undrandi þegar þeir Björn Bragi, Dóri DNA, Bergur Ebbi og Jóhann Alfreð mættu á svæðið og héldu gríninu gangandi í dágóða stund. Óhætt er að segja að uppistandið hafi vakið mikla lukku og grenjuðu strákarnir úr hlátri.
Svipmyndir frá þessari skemmtilegu uppákomu má sjá í myndbandinu hér að neðan:
https://www.facebook.com/vodafone.island/videos/2258813647469295/?t=89