Hörður Björgvin Magnússon hefur skrifað undir samning hjá CSKA Moskvu.
Hörður kemur til félagsins frá Bristol City þar sem hann hefur verið í tvö ár.
Hörður er vinstri bakvörður og miðvörður og hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu.
Hann er nú staddur í nýja heimalandi sínu með liðinu á HM í Rússlandi.
Hörður ólst upp í Fram en var svo lengi á mála hjá Juventus.