Eiður Smári Guðjohnsen sérfræðingur RÚV fylgir eftir íslenska landsliðinu á HM og nýtur þess í botn.
Eiður hefur vakið mikla athygli sem sérfræðingur enda frábær í því starfi.
Hann þekkir alla hluta leiksins og kemur með innsýn inn í huga leikmanna sem aðrir kannast ekkert við.
Eiður er staddur í Moskvu og naut lífsins í borginni í gær, hann skoðaði þar eitt frægasta kennileiti Rússlands sem við Íslendingar þekkjum.
Gamla og góða Lödu sem hann tók mynd af sér með en með honum í för var ljósmyndarinn, Baldur Kristjánsson.