fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Rúnar Alex er dýrasti markvörður í sögu Íslands – ,,Þetta er búið að vera heilt ár í bígerð“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. júní 2018 08:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:

,,Þetta er búið að taka svolítið langan tíma,“ sagði Rúnar Alex Rúnarsson, nýr leikmaður Dijon í Frakklandi.

Greint var frá því í gær að Rúnar hefði skrifað undir fjögurra ára samning við Dijon sem leikur í frönsku úrvalsdeildinni. Félagið lagði mikla áherslu á að fá Rúnar. Vísir.is segir frá því að Rúnar kosti liðið 200 milljónir, sem gerir hann að dýrasta markverði í sögu Íslands.

,,Það er mjög fínt að klára þetta í gær, á milli leikja. Þeir lögðu mikla áherslu á að fá mig, þeir treysta mér. Þetta gefur mér auka sjálfstraust að hafa trú á mér.“

Rúnar var í fjögur og hálft ár hjá Nordsjælland í Danmörku og fannst tímapunkturinn réttur til að breyta um.

,,Mér fannst þetta réttur tímapunktur, ég hef verið með sama þjálfarateymi lengur. Það var komin smá þreyta, mig langaði að prófa eitthvað nýtt. Fullkomin tímasetning. Ég frétti af áhuga þeirra í fyrra, eftir síðasta tímabil. Þetta er búið að vera heilt ár í bígerð.“

,,Þetta er stórt skref, mér finnst ég vera tilbúinn. Ég myndi ekki taka þetta skref annars. Þeir segja mér að ég sé kominn til að vera númer eitt, það er planið mitt.“

Viðtalið er í heild hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Í gær

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Í gær

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Í gær

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð