Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
Aldrei hafa fleiri Íslendingar horft á einn íþróttaviburð eins og á leik Íslands og Argentínu á HM á laugardag.
99,6 prósent af því fólki sem var að horfa á sjónvarpið sitt. Var með stillt á leik Íslands.
,,Áhorfið á leik Íslands og Argentínu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, 60% meðaláhorf, er það mesta sem mælst hefur á íþróttaviðburð(samkvæmt bráðabirgðatölum frá Gallup). Eldra metið var 58,8% áhorf á leik Íslands og Englands á EM í fótbolta 2016 en sá leikur var sýndur í beinni á RÚV og í Sjónvarpi Símans,“ segir á vef RÚV.
Meira:
Hörður segir landsliðið klárt í hitann og flugurnar – ,,Maður þarf að kaupa flugnanet fyrir leik“
Þetta ótrúlega áhorf kemur íslenskum leikmönnum á óvart þrátt fyrir vinsældir síðustu ára.
,,Mér datt ekki í hug að þetta væri svona mikið, það er gaman að sjá að öll þjóðin er að fylgjast með og styður við bakið á okkur,“ sagði Hörður Björgvin Magnússon um málið.