Kári Árnason hefur náð munnlegur samkomulagi við BSB Erzurumspor í Tyrklandi um að ganga í raðir félagsins eftir HM.
Miðvörðurinn knái mun því ekki koma heim í Víking í Pepsi deildina eins og búist var við. Kári hafði samið við Víkinga um að koma heim eftir HM með fyrirvara um að geta farið út.
BSB Erzurumspor var að koma sér upp í efstu deild þar í landi.
Miðvörðurinn verður 36 ára gamall í haust en hefur verið magnaður með íslenska landsliðinu.
Hann er annar leikmaðurinn sem semur við nýtt lið á HM. Rúnar Alex Rúnarsson samdi við Dijon í Frakklandi í gær.
Skrefið er frábært fyrir Kára og íslenska landsliðið en hann mun spila í sterkri deild á næstu leiktíð.