Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Moskvu:
Ísland náði í sögufrægt jafntefli í sínum fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu í fótbolta. Jafntefli gegn Argentínu. Kun Aguero kom Argentínu yfir í fyrri hálfleik en adam var ekki lengi í paradís. Alfreð Finnbogason jafnaði leikinn skömmu síðar.
Framherjinn knái byrjaði ekki neinn leik á EM í Frakklandi en byrjaði í dag og þakkaði traustið. Argentína pressaði stíft á okkur í síðari hálfleik og fékk vítaspyrnu. Hana varði Hannes Þór Halldórsson frá Lionel Messi. Magnað augnablik.
Íslenska liðið hélt út og náði í frábært stig. Næsti leikur er gegn Nígeríu, næsta föstudag.
Aron Einar Gunnarsson var eini leikmaður Íslands sem ekki kom í viðtöl eftir leik en hann byrjaði leikinn. Aron fór vell eftir 75 mínútur og virkaði afar þreyttur eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
,,Frábært stig gegn mjög sterku liði Argentínu,“ skrifar Aron á Instagram.