Samkvæmt fréttum í Frakklandi síðustu daga er Kolbeinn Sigþórsson staddur í Katar. Þar reynir að hann ná sér góðum af meiðlsum.
Framherjinn knái hefur ekki spilað með aðalliði í 18 mánuði vegna meiðsla á hné.
Hann var að koma til baka og lék tvo leiki með varaliði Nantes þegar meiðsli í nára tóku sig upp.
Kolbeinn fór með íslenska landsliðinu til Bandaríkjanna en gat ekki tekið þátt í leikum liðsins vegna meiðslanna.
Franskir fjölmiðlar segja að Kolbeinn vonist til þess að meðhöndlun í Katar komi honum inn á völlinn sem fyrst.
Kolbeinn lék síðast með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016 en hann hefur vonast til þess að geta spilað með landsliðinu á HM í Rússlandi.
Þessi meiðsli gætu sett stórt strik í reikning hans en aðeins er mánuður í að Heimir Hallgrímsson velji HM hóp sinn.