fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Real Madrid vann í Þýskalandi og er í góðum málum fyrir seinni leikinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. apríl 2018 20:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bayern Munich 2 – 0 Real Madrid
1-0 Joshua Kimmich (28′)
1-1 Marcelo (44′)
1-2 Marco Asensio (57′)

Bayern Munich tók á móti Real Madrid í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeilarinnar í kvöld en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.

Það var Joshua Kimmich sem opnaði markareikninginn á 28. mínútu þegar hann slapp einn í gegn en setja má spurningamerki við Keylor Navas í marki gestanna sem missti boltann klaufalega framhjá sér.

Marcelo jafnaði hins vegar metin fyrir Real Madrid með frábæru skoti fyrir utan teig en hann hamraði boltanum meðfram jörðini, í fjærhornið og staðan því orðin 1-1.

Á 57. mínútu var svo komið að Marco Asensio en hann slapp einn í gegn og setti boltann snyrtilega framhjá Sven Ulreich í marki heimamanna og staðan því orðin 2-1 fyrir Real Madrid.

Bæjarar reyndu hvað þeir gátu að jafna metin og settu ágætis pressu á gestina, án þess þó að ná að opna þá af einhverju viti og lokatölur því 2-1 fyrir Real Madrid.

Spánverjarnir því í ansi góðum málum fyrir seinni leik liðanna sem fram fer í Madrid þann 1. maí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

„Það er bara ágætt að vera spáð sjöunda sæti til að geta komið fólki á óvart“

„Það er bara ágætt að vera spáð sjöunda sæti til að geta komið fólki á óvart“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Bjarki lánaður frá Víkingi á ný

Bjarki lánaður frá Víkingi á ný
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna – Val spáð titlinum í enn eitt skiptið

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna – Val spáð titlinum í enn eitt skiptið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mikið áhyggjuefni fyrir Arteta í aðdraganda leiksins í kvöld

Mikið áhyggjuefni fyrir Arteta í aðdraganda leiksins í kvöld
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sjáðu hvað Mbappe gerði í gær sem ekki allir tóku eftir í beinni útsendingu

Sjáðu hvað Mbappe gerði í gær sem ekki allir tóku eftir í beinni útsendingu
433Sport
Í gær

Víkingur er meistari meistaranna eftir sigur í vítaspyrnukeppni – Sjáðu mörkin

Víkingur er meistari meistaranna eftir sigur í vítaspyrnukeppni – Sjáðu mörkin
433Sport
Í gær

Sjáðu myndbandið: Xavi fékk rautt spjald fyrir hegðun sína í kvöld

Sjáðu myndbandið: Xavi fékk rautt spjald fyrir hegðun sína í kvöld