Jurgen Klopp stjóri Liverpool ákvað að hjóla bæði í Donald Trump og Brexit þegar hann ræddi við fréttamann í vikunni.
Klopp var spurður að því af hverju fólk hlustaði svo vel á hann eins og raun ber vitni.
Klopp á hug og hjörtu stuðningsmanna Liverpool sem telja að hann komi með góða tíma aftur til félagsins.
,,Kannski er vandamálið að fólk hlustar of oft á rangt fólk, það er ástæða þess að við erum að ganga í gegnum breytingar í heiminum,“ sagði Klopp.
,,Þess vegna er Trump forseti Bandaríkjanna, það hlýtur að vera betra fólk en hann í það starf. Maður hugsar að land eins og þetta geri þetta ekki en svo er það Donald Trump sem er mættur.“
Um ákvörðun Breyta að ganga úr Evrópusambandinu hafði Klopp þetta að segja.
,,Brexit, það er ekki lausn. Evrópusambandið er ekki fullkomið, það var hins vegar besta hugmyndin hingað til.“