Margir Íslendingar hafa setið eftir með sárt ennið þegar þeir hafa reynt að verða sér úti um miða á leiki Íslands á Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu í sumar. Sérstaklega hefur fólki gengið erfiðlega að tryggja sér miða á leik Íslands og Argentínu sem verður fyrsti leikur liðsins á stærsta sviðinu, stuðningsmenn Íslands fá 8 prósent af þeim miðum sem eru í boði á leikinn. Það fá því aðeins rúmlega 3.600 íslenskir stuðningsmenn miða með þessum hætti á fyrsta leikinn, á vellinum verða þó talsvert fleiri Íslendingar. KSÍ fékk mikið magn af miðum en mikil leyndarhyggja ríkir yfir því hversu margir þeir miðar eru. Stjórnarfólk, starfsfólk, leikmenn og síðast en ekki síst styrktaraðilar KSÍ fá talsvert mikið magn af miðum.
Hafði ekki áhrif á fjölda miða til stuðningsmanna
Þrátt fyrir að KSÍ hafi fengið mikið magn af miðum til að deila út til þessara aðila hafði það ekki áhrif á fjölda miða sem fór til stuðningsmanna. „Miðasala til stuðningsmanna Íslands og þeir miðar sem KSÍ fær til úthlutunar frá FIFA tengjast ekki á neinn hátt, þ.e. KSÍ fær enga miða af þeim 8% sem eru til sölu fyrir stuðningsmenn Íslands,“ sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ þegar við sendum henni fyrirspurn um málið. „Úthlutunin frá FIFA er í tvennu lagi, annars vegar miðar sem hvert sérsamband fær til afnota og hins vegar sölumiðar. Þó að KSÍ hefði ekki tekið neinn miða fyrir sambandið þá hefði það ekki fjölgað miðum í sölu til stuðningsmanna Íslands,“ sagði Klara enn fremur.
KSÍ neitar að gefa upp
Klara neitar að gefa upp hversu margir miðar fara til styrktaraðila KSÍ og hvað leikmenn liðsins fá marga miða á mann. KSÍ á sér marga stóra styrktaraðila og hafa heyrst sögur þess efnis að sumir af þeim fái um og yfir 100 miða á leiki Íslands á HM, um það vill KSÍ ekkert segja og á meðan verða það bara sögusagnir. Einnig hefur heyrst að leikmenn liðsins fái í kringum 8 miða á mann á hvern leik, það gera 184 miða á leik. Eins og með styrktaraðila KSÍ neitar Klara að svara því. „Fjöldi miða til bakhjarla og leikmanna er trúnaðarmál,“ sagði Klara en leikmenn íslenska liðsins áttu eins og aðrir auðveldara með að fá fleiri miða á leiki á Evrópumótinu í Frakklandi.
Starfsfólk fær 2 miða
Starfsfólk á skrifstofu KSÍ getur fengið miða á leiki Íslands fyrir sig og einn gest, stjórnarfólk KSÍ hefur hins vegar getað fengið 4 miða á leiki ef eftir því hefur verið sóst. „Starfsfólk KSÍ getur fengið 2 miða á mann á 1–2 leiki, fyrir sig og sinn gest,“ sagði Klara. Stuðningsmenn Íslands á fyrsta leiknum gegn Argentínu verða líklega fleiri en 5 þúsund, þrátt fyrir að almennir stuðningsmenn hafi aðeins getað sótt um rúmlega 3.600 miða.