,,Ég er mjög ánægður hérna, ég kann vel við fólkið hér og það hefur verið tekið virkilega vel á móti mér. Ég er mjög sáttur, þegar það gengur vel innan vallar er lífið auðveldara,“ sagði Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður Elaziğspor Kulübü Derneği̇ í Tyrklandi, þegar við slógum á þráðinn til hans í vikunni. Elmar var þá í fullu fjöri að leika við dreng sinn í blíðskaparveðri í Tyrklandi.
Theodór Elmar hafði í níu ár búið á Norðurlöndunum, fyrst í Noregi áður en hann hélt til Svíþjóðar og þaðan lá leiðin til Danmerkur. Elmar vildi prufa nýtt ævintýri og tilboðið frá Elaziğspor var spennandi, bæði nýtt umhverfi og fjárhagslega var það gott. Liðið leikur í næstefstu deild þar í landi.
,,Það er mikill munur á menningunni hérna og ég hafði vanist í Skandinavíu, þetta er heldur ekki stór bær (Elazig) ef maður tekur mælikvarðann hérna í Tyrklandi. Hér búa um 400 þúsund manns, það er reyndar stærra en allt Ísland. Þetta er mjög rólegt og notalegt hérna, maður eyðir miklum tíma með fjölskyldunni og getur einbeitt sér að fótboltanum. Þegar ég vissi af áhuga þeirra þá fór maður í tölvuna og fór á Google, þetta lítur miklu verr út á Google en það er í raun og veru. Ég hef ekki yfir neinu að kvarta.“
Tæknileg geta mjög góð
Eftir mörg ár í svipuðum fótbolta hefur Elmar þurft að venjast nýjum fótbolta og leikstíl, það virðist hins vegar henta honum. Elmar hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína. ,,Ég myndi segja að tæknilega sé þetta miklu betra en í Skandinavíu, það eru fleiri hágæða leikmenn. Launin eru líka töluvert betri hérna, það vantar aðeins upp á taktískan skilning. Það verður mörgum liðum að falli hérna að menn skilja ekki taktík nógu vel. Það eru fleiri betri leikmenn, við höfum verið að spila mjög vel eftir áramót og erum bara tveimur stigum frá umspili, við eigum möguleika en þurfum að vinna alla þrjá leikina. Við höfum verið öflugir gegn betri liðum deildarinnar en misstigið okkur gegn þeim slakari.“
Þrír þjálfarar á einu ári
Stjórnarmenn liða í Tyrklandi hafa ekkert sérstaklega mikla þolinmæði og eru fljótir að reka þjálfarann ef eitthvað bjátar á. ,,Fyrsti þjálfarinn var bara rekinn í upphafi tímabils, það var svo annar rekinn um daginn. Sá sem er með okkur núna var útsendari hérna og ég þekkti hann því vel. Þetta er spes, maður þarf samt held ég bara að venjast þessu. Svona er þetta oftar en ekki hérna, þjálfarinn er fljótur að fara ef eitthvað gengur ekki upp. Þeir fá ekkert allt of mikinn séns. Ég býst við því að vera hérna áfram nema að það komi eitthvað úr úrvalsdeildinni, það hefur verið áhugi í gangi og því veit maður aldrei. Það er rosalega spennandi deild, mikið af frábærum leikmönnum. Ég held að ein af þeim ástæðum að ég sé að spila svona vel er að fótboltinn hérna hentar mér mjög vel. Ég hef mest spilað á miðjunni og þar líður mér best, þetta hefur bara verið gaman.“
Bjartsýnn á HM-sæti
Theodór er einn af þeim sem er í harðri baráttu um að komast með í 23 manna leikmannahóp Íslands sem heldur á Heimsmeistaramótið í Rússlandi. Íslenska liðið er vel mannað og datt Elmar úr myndinni um tíma í undankeppni HM, hann er hins vegar mættur aftur inn og á góða möguleika. ,,Maður er bjartsýnn, ég er keppnismaður og vona bara það besta,“ sagði Elmar sem veit hins vegar að samkeppnin um stöður er hörð. ,,Ég er meðvitaður um það að samkeppnin hérna er mjög hörð, hópurinn hefur stækkað á síðustu árum og það er samkeppni um að vera með. Það eru menn í mínum stöðum sem eru að spila mjög vel og eru öflugir, ég reyni að hugsa eins lítið um þetta og hægt er. Þetta er samt handan við hornið, það sem gerist mun gerast. Maður tekur bara því sem kemur, ég lít á björtu hliðarnar og er vongóður. Það væri óeðlilegt ef maður yrði ekki svekktur ef maður verður ekki í hópnum. Þetta er stærsti íþróttaviðburður sem Ísland hefur verið með á, ef maður hefur verið nálægt þessum hópi þá vonast maður eftir því að vera með. Fótboltinn er harður heimur, maður fær hlutina í andlitið þegar ekki gengur vel og maður fær mikið hrós þegar vel gengur.“