Arsene Wenger mun láta af störfum sem þjálfari Arsenal í sumar eftir 22 ár í starfi.
Þessi franski stjóri hefur ákveðið að binda enda á feril sinn hjá félaginu eftir magnaða tíma.
Hann vonast til að vinna Evrópudeildina til að kveðja félagið á góðan hátt en hann vann ensku úrvalsdeildina þrisvar.
,,Ég er þakklátur fyrir að hafa stjórnað þessu félagi svona lengi,“ sagði Wenger.
,,Ég stýrði félaginu alltaf stoltur, ekki gleyma gildum þessa félags.“