PFA hefur birt lið ársins sem leikmenn deildarinnar völdu í kjöri sem fór fram á dögunum.
Leikmaður ársins verður kynntur um helgina.
David De Gea stendur í markinu en Englandsmeistarar Manchester City eiga fjóra fulltrúa í liðinu.
Tottenham er með þrjá leikmenn í liðinu og auðvitað er Mohamed Salah í fremstu línu.
Þá er Marcos Alonso bakvörður Chelsea í liðinu en liðið er hér að neðan.