fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Harðorð yfirlýsing FH – ,,Félagið fordæmir þær persónulegu árásir sem Jón Rúnar hefur mátt þola“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 17:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðar Halldórsson formaður FH hefur skrifað harðorða yfirlýsingu er varðar aðstöðumál í Hafnafirði.

Viðar rekur málið og fer yfir það hvernig því er háttað, FH er eitt af þeim félögum sem býr við mikið aðstöðuleysi yfir veturinn.

Dvergurinn og Risinn eru tvö lítil kntthús á svæði FH og voru byggð og eru rekin af dótturfélagi Fimleikafélags Hafnarfjarðar og knattspyrnudeildar félagsins.

Nú liggur fyrir að Hafnarfjarðarbær hyggur á að byggja þriðja húsið fyrir FH-inga, nú hús í fullri stærð. Miklar umræður hafa verið um málið og aðkomu Jóns Rúnars Halldórssonar, formanns knattspyrnudeildar. Hann er umboðsaðili fyrirtækisins sem framleiðir knatthúsin en hefur sjálfur greint frá því að hann fái ekki krónu fyrir.

,,Að síðustu viljum við fordæma þá neikvæðu og tilhæfulausu umræðu og jafnvel árásir sem fram hafa komið um þátt formanns knattspyrnudeildar FH í byggingu knatthúsa félagsins í Kaplakrika. Því er grímulaust haldið fram að sá einstaklingur vinni með eigin hagsmuni að leiðarljósi. Raunveruleiki þessa er að vegna reynslu og kunnáttu formanns knattspyrudeildar FH, reynslu og kunnáttu sem félagið hefur getað nýtt sér án endurgjalds í áratugi hafa risið í Kaplakrika tvö og innan skamms þrjú hagkvæmustu knatthús landsins hvort heldur sem litið er til byggingakostnaðar eða rekstrar. Það skal sagt hér að félagið fordæmir þær persónulegu árásir sem formaður knattspyrnudeildar hefur mátt þola vegna þessa máls,“
segir í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing FH:
Stjórn Fimleikafélags Hafnarfjarða, FH telur sig knúna til þess að koma á framfæri nokkrum staðreyndum er varða aðstöðumál knattspyrnudeildar félagsins sem af einhverjum mjög undarlegum og í raun óskiljanlegum ástæðum hafa verið skrumskældar af ýmsum aðilum hér í bæ.

Fimleikafélag Hafnarfjarðar hóf framkvæmdir í Kaplakrika á árinu 1968 og hafa því framkvæmdir í Kaplakrika staðið yfir nú í um 50 ár. Forystumenn félagsins á þeim tíma voru dugmiklir hugsjónamenn með djarfa framtíðarsýn sem segja má lýsi sér í hinum glæsilegu mannvirkjum sem nú hafa risið í Kaplakrika. Vissulega höfum við FH-ingar ekki staðið að þessu einir heldur átt gott samstarf við stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar, en Hafnarfjarðarbær hefur með tíð og tíma aukið framlag sitt til uppbyggingar íþróttamannvirkja eins og önnur sveitarfélög í landinu. Öllum er orðið ljóst að þróttmikið barna- og unglingastarf íþróttafélaganna er lykilatriði nú á tímum. Framlag FH til uppbyggingarinnar hefur verið mishátt á þessum fimm áratugum eða frá því að vera 100% í upphafi niður í 10% nú á allra síðustu árum. Framlag þetta á upphafsárum og reyndar enn fram til dagsins í dag var og er að mestu óeigingjörn sjálfboðaliðsvinna FH-inga og gjafir frá fyrirtækjum og einstaklingum. Ómetanlegt í raun en þetta gerir það að verkum að eignarhlutur Fimleikafélags Hafnarfjarðar í mannvirkjum í Kaplakrika er vel á annan milljarð króna. Fimleikafélag Hafnarfjarðar hefur aldrei fengið fjárframlög úr Bæjarsjóði Hafnarfjarðar til greiðslu vanskila vegna rekstrar deilda, öll fjárframlög Bæjarsjóðs til Fimleikafélagsins hafa verið vegna mannvirkjauppbyggingar.

Hafnarfjarðarbær lét nýverið fara fram óháða athugun á aðstöðuvanda knattspyrnunnar í Hafnarfirði yfir vetrarmánuðina. Niðurstaða þarfagreiningar þessarar er skýr. Aðstöðuvandinn í Kaplakrika er verulegur, raunar með ólíkindum að fréttaflutningur fjölmiðla skuli ekki snúa að þessum vanda. Skv. þarfagreiningunni er vöntunin í Kaplakrika, fullstór knattspyrnuvöllur með þeim tækjum og tólum sem til þarf vegna vetrariðkunar. Aðalstjórn FH hefur átt gott samtal við bæjaryfirvöld vegna þessa og með það í farteskinu að framkvæmd þessi er efst á forgangslista ÍBH hafa bæjaryfirvöld tekið okkur vel og sýnt vilja til lausnar á málinu. Forráðamenn knattspyrnunnar í FH hafa ávallt leitað hagkvæmustu lausna og má segja að Risinn, knatthús, beri þess merki. Ódýr í byggingu og rekstri. Með sömu markmið að leiðarljósi hefur FH óskað eftir byggingu á stóru knatthúsi í Kaplakrika, ódýru húsi með lágum rekstrarkostnaði, KNATTSPYRNUSKJÓLI. Knatthús þetta yrði jú þriðja knatthúsið í Kaplakrika en FYRSTA knatthúsið sem byggt yrði af Hafnarfjarðarbæ. Knatthúsin sem fyrir eru, Dvergurinn (2015) og Risinn (2005) voru byggð af FH og rekstur þeirra er á hendi FH. Leigusamningur um Risann sem Hafnarfjarðarbær og FH gerðu í aðdraganda bYggingu hússins er ein aðalástæða þess að reist var hagkvæmasta íþróttamannvirki á Íslandi. Enginn samningur hefur enn verið gerður um Dverginn, bygging og rekstur hússins alfarið verið á hendi FH. Bygging Dvergsins var félaginu erfið, en nauðsynleg. Án aðkomu Hafnarfjarðarbæjar. Að fjármagna, byggja og reka íþróttamannvirki er jafnvel sveitarfélagi erfitt, hvað þá íþróttafélagi, en nauðsyn skapar lausnir. Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar (BUR) kom að málinu á afgerandi en sérstakan hátt, í miklu samráði við fjöldan allan af foreldrum iðkenda náðist samstaða á afar fjölmennum félagsfundi um leigugreiðslu BUR vegna aðstöðunnar. Foreldrar iðkenda greiða í raun að stórum hluta fyrir íþróttaaðstöðu barna sinna, einsdæmi á Íslandi. Aðalstjórn FH vill þakka BUR og þá sérstakleg foreldrum iðkenda fyrir framlagið og þann mikla skilning sem þau hafa sýnt á málefninu.

Dvergurinn og Risinn voru byggð og eru rekin af dótturfélagi Fimleikafélags Hafnarfjarðar og knattspyrnudeildar félagsins, FH-knatthúsum ehf., en félagið er að jöfnu í eigu aðalstjórnar og knattspyrnudeildar og hefur verið það frá stofndegi félagsins. Aðstaða þessi er frábær að mörgu leyti en við FH-ingar höfum dregist aftur úr öðrum félögum varðandi fullstóran knattspyrnuvöll. Allt tal um að aðstaða þessi sé orsök þess að knattspyrnudeild FH hafi innan sinna vébanda langflesta iðkendur íþróttadeildar í Hafnarfirði er einfaldlega rangt, deildin var langstærsta íþróttadeild í Hafnarfirði áður er knatthúsin voru tekin í notkun og hefur haldið því. Fjöldi iðkenda í íþróttadeild er vitanlega að mestu í takt við gæði, áhuga og árangur starfsins innan íþróttadeilda og þar hefur knattspyrnudeild FH verið í forystu alla þessa öld eins og til að mynda þjálfaramenntunarstyrkur ÍBH/RIO TINTO/Hafnarfjarðarbæjar hefur sýnt á undanförnum árum.

Aðalstjórn FH hefur ekki tekið þátt í einhverri sagnfræði um greiðslur til uppbyggingar á hinum ýmsu íþróttasvæðum í Hafnarfirði. Það að taka út e-r ákveðin ár og bera hlutina þannig saman er að okkar mati algjörlega út í hött og er engum til framdráttar sérstaklega ekki þegar sú sagnfræði er röng og verulega háum greiðslum til einstakra íþróttafélaga sleppt. Aðalstjórn FH telur að Hafnarfjarðabæ hafi tekist ágætlega til með uppbyggingu íþróttamannvirkja á síðustu árum og vill óska Hafnarfjarðarbæ sérstaklega til hamingju með nýjasta mannvirkið, æfingahús fyrir körfubolta, Ólafssal, á Ásvöllum.

Að síðustu viljum við fordæma þá neikvæðu og tilhæfulausu umræðu og jafnvel árásir sem fram hafa komið um þátt formanns knattspyrnudeildar FH í byggingu knatthúsa félagsins í Kaplakrika. Því er grímulaust haldið fram að sá einstaklingur vinni með eigin hagsmuni að leiðarljósi. Raunveruleiki þessa er að vegna reynslu og kunnáttu formanns knattspyrudeildar FH, reynslu og kunnáttu sem félagið hefur getað nýtt sér án endurgjalds í áratugi hafa risið í Kaplakrika tvö og innan skamms þrjú hagkvæmustu knatthús landsins hvort heldur sem litið er til byggingakostnaðar eða rekstrar. Það skal sagt hér að félagið fordæmir þær persónulegu árásir sem formaður knattspyrnudeildar hefur mátt þola vegna þessa máls.

Hafnarfirði 18. Apríl 2018

f.h. stjórnar Fimleikafélags Hafnarfjarðar
Viðar Halldórsson, formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hartman í Val

Hartman í Val
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?

Stuðningsmenn Liverpool súpa hveljur – Af hverju er húsið hans komið á sölu?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans
433Sport
Í gær

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche
433Sport
Í gær

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það