fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Ein af hetjum íslenska landsliðsins segir frá vandræðum sínum – ,,Þetta hefur verið stórt vandamál í mínu lífi“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. apríl 2018 22:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Ég er mjög fljótur upp og mjög lengi niður,“ segir Ragnar Sigurðsson varnarmaður íslenska landsliðsins í fótbolta og Rostov í Rússlandi við RÚV.

Þetta kom fram í þættinum Draumurinn um HM sem var sýndur á RÚV í kvöld.

Ragnar kveðst eiga í vandræðum með að stjórna skapi sínu en hann verður í lykilhlutverki þegar liðið leikur á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar.

,,Þegar eitthvað gerist þá þarf ég helst að fá að vera einn einhvers staðar, þetta hefur verið stórt vandamál í mínu lífi,“ segir Ragnar sem fer ekki í felur með galla sína, ef galla má kalla.

,,Þó að það sé kannski fyndið að tala um þetta í einhverju djóki, þá er þetta ekki jákvæður hlutur. Ég vildi óska þess að þetta væri ekki svona, það gengur ekki alveg að láta skap stjórna svona stórum hluta af lífi sínu.“

Ragnar segir að stjórn hans á skapinu hafi ekki batnað með árunum en hann er 31 árs gamall. ,,Mér finnst þetta ekki vera að skána neitt. Ég er að vinna með þetta í dag í fyrsta sinn, ég hef aldrei unnið neitt með þetta áður. Ég held að þetta sé stór hluti af þeim persónuleika af þeim sem þekkja mig. Í stóru myndinni er þetta ekkert jákvætt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus

United gæti notað Greenwood upp í kaup á leikmanni Juventus
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche

Ekki komið til tals að reka Sean Dyche
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Endar Martial hjá liði í London?

Endar Martial hjá liði í London?