Real Madrid tók á móti Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Mario Mandzukic skoraði tvívegis fyrir gestina ásamt Blaise Matuidi en það var Cristiano Ronaldo sem minnkaði muninn fyrir heimamenn á lokamínútum leiksins með marki úr vítaspyrnu og Real fer því áfram í undanúrslit keppninnar, samanlegt 4-3.
Massimiliano Allegri, stjóri Juventus var að vonum afar svekktur með að falla úr leik í keppninni eftir umdeildan vítaspyrnudóm.
„Ég er gríðarlega svekktur að leikurinn hafi ekki farið í framlengingu, mér fannst bæði lið eiga það skilið,“ sagði stjórinn.
„Það var eitt lítið smáatriði sem breytti einvíginu því miður. Ég var með tvær skiptingar tilbúnar fyrir framlenginguna því ég var viss um að við myndum klára dæmið,“ sagði stjórinn að lokum.