Viðtal Ólafs Þórðarsonar knattsyrnugoðsagnar heur vakið mikla athygli en hann er í áhugaverðu spjalli við Gunnlaug Jónsson í Návígi á Fótbolta.net í gær.
Ólafur er 52 ára gamall en hann hefur ekki verið í fótboltanum síðan sumarið 2015 þegar hann var þjálfari Víkings.
Hann ólst upp á Akranesi en Ólafur er fæddur árið 1965, hann varð í sigursælum yngri flokkum ÍA, þeir urðu Íslandsmeistarar árið 1977 og 1981 en árið 1979 klikkuðu Ólafur og félagar á því að verða Íslandsmeistarar.
Á því er einföld skýring að mati Ólafs en hann skellir skuldinni á Vilhjálm Birgisson sem í dag er verkalýðsforingi á Akranesi. Hann segir að stelpur sem voru fyrir aftan markið hefðu truflað Vilhjálm sem fór að „höstla“.
,,Villi Birgis, verkalýðsforingi var bak við markið að reyna að höstla einhverjar stelpur og við fengum á okkur mark sem kostaði okkur að komast í úrslitaleikinn. Vili var markvörður þarna, hann var mikill höstlari,“ segir Ólafur í þessu áhugaverða viðtali við Gunnlaug Jónsson á Fótbolta.net.
,,Það voru tvær stelpur úr Eyjafirðinum, þetta var spilað þar og Villi gleymdi sér eitt augnablik. Það kostaði okkur að komast í úrslitaleikinn. Þetta var mjög dýrt og það kom ekkert út úr þessu hjá honum frekar en fyrri daginn.“
Meira:
Helgi Seljan hjólar í Ólaf – ,,Það að keyra vörubíl í Kraftgalla gerir þig ekki að einhverjum old wise man“
Verið að Rítalín-dópa börn frá unga aldri – „Það er verið að kerlingavæða þetta“
„Börn í dag alin upp í bómull og á brjósti til tvítugs“