Real Madrid tók á móti Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Mario Mandzukic skoraði tvívegis fyrir gestina ásamt Blaise Matuidi en það var Cristiano Ronaldo sem minnkaði muninn fyrir heimamenn á lokamínútum leiksins með marki úr vítaspyrnu.
Vítaspyrnudómurinn var umdeildur en ef gestunum hefði tekist að halda út í 90. mínútur hefði verið framlengt.
Real fékk hins vegar víti eins og áður sagði sem var umdeilt og rifust ítalskir og spænskir blaðamenn heiftarlega um dóminn í fjölmiðlastúkunni á Santiago Bernabeu.
Þeim var síðan vísað úr stúkunni samkvæmt sjónarvottum á vellinum en Real fór áfram í einvíginu, samanlegt 4-3.