fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Eyjólfur og Rúnar hafa valið liðin fyrir Tommadaginn – 200 dagar á sjúkrahúsi og aðgerð erlendis bíður

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 5. desember 2018 15:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyjólfur Sverrisson þjálfari landsliðsins og Rúnar Kristinsson þjálfari pressuliðsins eru búnir að velja lið sín fyrir stórleikinn á sunnudag en leikurinn er kl 11:00 í Egilshöll.

Það er greinilegt að Eyjólfur ætlar að vera varnarsinnaður en hann hefur valið 3 markmenn í sinn hóp á meðan Rúnar hefur greinilega ekki mikla trú á andstæðing sínum þar sem hann hefur eingöngu valið 14 leikmenn í hópinn hjá sér. Þjálfararnir hafa þó frest til sunnudags að fylla upp í hópana hjá sér.

,,Ég veit að Rúnar er klókur þjálfari, hann veit alveg hvað hann er að gera. Sumir halda að mitt lið sé að fara inn í leikinn til að verjast en við munum koma á óvart. Ég valdi nokkra sóknarsinnaða leikmenn í hópinn, eins og Sigga Ágústs sem skoraði sem dæmi mark á æfingu um daginn og gaf boltann tvisvar, það gerist ekki oft. Nú þegar hópurinn hefur verið tilkynntur þá veit ég að það fer um Rúnar. Það er tilhlökkun í hópnum, við munum fara í leikinn til að sigra. „ segir Eyjólfur Sverrisson þjálfari landsliðsins.

,,Við förum fullir sjálfstrausts inn í leikinn. Ég er með frábæra leikmenn í mínu liði. Ég held að nánast allir leikmenn mínir hafi verið fyrirliðar hjá sínum félagsliðum í gegnum tíðina, nema náttúrulega Hjörvar. Við ætlum að spila sóknarbolta og ég treysti mest á að Willum Þór Þórsson beri uppi sóknarleik okkar, útsjónasamur, teknískur og hraður strákur. Úrslit leiksins munu ráðast á dagsforminu. „ segir Rúnar Kristinsson þjálfari pressuliðsins.

Minnum á viðburðinn inn á Facebook: Tommadagurinn

Pressulið

Rúni Kristinsson
Þjálfari

Sigurður Þórðarson
Búningastjóri

Nökkvi Sveinsson
Liðsstjóri

Róbert Magnússon
Sjúkraþjálfari

Leikmenn

Hjörvar Hafliðason
6 leikir í A liði yngri flokka, 112 leikir í B liði.

Kristján Finnbogason
268 leikir í efstu deild – 20 A landsleikur

Brynjar Björn Gunnarsson
74 A landsleikir

Þormóður Egilsson
239 leikir í Efstu deild – 8 A landsleikir

Guðni Bergsson (c)
80 A landsleikir

Reynir Leósson
201 leikir í efstu deild

Rúnar Kristinsson
104 A landsleikir

Ingi Sigurðsson
205 leikir í efstu deild

Bjarnólfur Lárusson
165 leikir í efstu deild

Lúðvík Bergvinson
38 leikir í efstu deild

Sigurvin Ólafsson
135 leikir í efstu deild – 7 A landsleikir

Hilmar Björnsson
185 leikir í efstu deild – 3 A landsleikir

Þorsteinn Guðjónsson
53 leikir í efstu deild – 4 A landsleikir

Willum Þór Þórsson
2 samþykkt frumvörp á Alþingi

Landslið

Eyjólfur Sverrisson
Þjálfari

Lúðvík Jónsson
Búningastjóri

Óskar Hrafn Þorvaldsson
Liðsstjóri

Stefán Örn Pétursson
Sjúkraþjálfari

Leikmenn

Jörundur Kristinsson
54 leikir í B deild

Birkir Kristinsson
316 leikir í efstu deild – 74 A landsleikir

Gunnar Sigurðsson
131 leikir í efstu deild

Arnar Már Arnþórsson
219 ELO stig

Matthías Sigvaldason
22 leikir í efstu deild

Veigur Sveinsson
10 leikir í bikarkeppni KSÍ

Óli Ingi Skúlason (c)
259 leikir í atvinnumennsku – 36 A landsleikir

Eyjólfur Sverrisson
307 leikir í efstu deild Þýskalands – 0 leikir í efstu deild á Íslandi

Jón Steindór Þorsteinsson
Stjórnað 287 leikjur sem þjálfari

Arnar Grétarsson
149 leikir í efstu deild – 71 A landsleikur

Sindri Bjarnason
55 leikir í efstu deild

Sigurður Ágústsson
Engin leikur í efstu deild – Sigur á Dolmatov í hraðskák 2001

Hörður Már Magnússon
135 leikir í efstu deild

Pétur Arason
112 ELO stig

Þorsteinn Sveinsson
36 leikir í efstu deild

Gunnar Oddsson
291 leikur í efstu deild – 3 A landsleikir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls