fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
433Sport

Þetta hefur Mourinho þénað fyrir það eitt að vera rekinn fjórum sinnum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 19. desember 2018 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United ákvað í gær að reka Jose Mourinho úr starfi og mun Ole Gunnar Solskjær taka tímabundið við liðinu.

Mourinho er rekinn frá United eftir slæmt tap gegn Liverpool á sunnudag, stjórn United hefur fengið nóg. Mourinho var á sínu þriðja tímabili með félagið en gengi liðsins í ár hefur verið slakt. United er langt frá toppliðum deildarinnar en Mourinho vann þrjá titla á fyrstu leiktíð sinni, síðan þá hefur hallað undan fæti.

Mourinno mætti á æfingasvæði félagsins klukkan 9:02 í gær, hann var eins og alltaf keyrður á svæðið á glæsilegum Jaguar bíl. 44 mínútum síðar var hann búinn að funda með Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins sem rak hann úr starfi.

Það var nokkuð létt yfir Mourinho á leið á æfinguna og eflaust taldi hann að hann myndi fá lengri tíma í starfinu.

Það var hins vegar örlagaríkt símtal frá Joe Glazer eiganda félagsins, í gærkvöldi, sem varð til þess að Mourinho var rekinn.

Manchester United borgaði Mourinho 24 milljónir punda fyrir að reka en samtals hefur Mourinho þénað 51,5 milljónir punda fyrir að vera rekinn fjórum sinnum. Um er að ræða 8 milljarða.

Ofan á það hefur hann þénað ótrúlega í laun á meðan hann hefur verið í starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann

Arsenal fær óvæntar 350 milljónir í kassann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu

Dóttir stjórans kemst í fréttirnar – Skiptir um kærasta en valdi samherja hans í landsliðinu