Manchester United hefur staðfest að búið sé að reka Jose Mourinho frá félaginu.
Mourinho er rekinn frá United eftir slæmt tap gegn Liverpool á sunnudag, stjórn United hefur fengið nóg. Mourinho er á sínu þriðja tímabili með félagið en gengi liðsins í ár hefur verið slakt. United er langt frá toppliðum deildarinnar en Mourinho vann þrjá titla á fyrstu leiktíð sinni, síðan þá hefur hallað undan fæti.
Mourinno mætti á æfingasvæði félagsins klukkan 9:02 í morgun, hann var eins og alltaf keyrður á svæðið á glæsilegum Jaguar bíl. 44 mínútum síðar var hann búinn að funda með Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins sem rak hann úr starfi.
Enskir miðlar segja frá því að 90 prósent af leikmönnum United fagni þessum tíðindum, þeir hafi viljað að stjórinn yrði rekinn úr starfi.
Ensk blöð segja að leikmenn United hafi fengið nóg af Mourinho eftir 2-2 jafntefli við Southampton á dögunum.
Á fundi eftir leik og í fjölmiðlum for hann að lesa yfir leikmönnum, sérstaklega Paul Pogba. Sagt er að sambandið hafi dáið þar og að örlög Mourinho væru klár.