Darren Fletcher, fyrrum leikmaður Manchester United, er ekki of hrifinn af leikmannakaupum félagsins síðustu ár.
Fletcher lék lengst undir stjórn Sir Alex Ferguson á Old Trafford en hann hætti störfum árið 2013.
David Moyes, Louis van Gaal og Jose Mourinho hafa stýrt liðinu síðan þá en sá síðastnefndi var rekinn í dag.
Ferguson fór yfir allt áður en hann ákvað að kaupa leikmann og passaði vel upp á að hann væri að fá leikmann sem myndi henta félaginu.
,,Það eru ákveðnir eiginleikar sem leikmenn Manchester United þurfa að hafa. Er hann sigurvegari? Hvernig æfir hann?“ sagði Fletcher.
,,Þetta snýst um að fá eins miklar upplýsingar um leikmanninn og mögulegt er, ekki bara horfa á myndbönd eða á leiki.“
,,Sir Alex Ferguson vildi hitta foreldra þína. Hann vildi sjá hversu hávaxin þau væru og spyrja þau út í fortíðina. Hann fór út í þau smáatriði.“
,,Hann þekkti bakgrunn allra leikmann og hvað hvatti þá áfram og úr hverju þeir voru gerðir.“
,,Þú horfir á leikmannahópinn núna og hugsar: ‘Góður leikmaður, en nennir hann þessu?’