Manchester United hefur staðfest að búið sé að reka Jose Mourinho frá félaginu.
Mourinho er rekinn frá United eftir slæmt tap gegn Liverpool á sunnudag, stjórn United hefur fengið nóg. Mourinho er á sínu þriðja tímabili með félagið en gengi liðsins í ár hefur verið slakt. United er langt frá toppliðum deildarinnar en Mourinho vann þrjá titla á fyrstu leiktíð sinni, síðan þá hefur hallað undan fæti.
Mourinno mætti á æfingasvæði félagsins klukkan 9:02 í morgun, hann var eins og alltaf keyrður á svæðið á glæsilegum Jaguar bíl. 44 mínútum síðar var hann búinn að funda með Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins sem rak hann úr starfi.
Það var nokkuð létt yfir Mourinho á leið á æfinguna og eflaust taldi hann að hann myndi fá lengri tíma í starfinu.
Jamie Jackson, blaðamaður Guardian segir frá því að Mourinho hafi verið mjög hissa að uppsagnarbréfið hafi beðið hans í morgun. Hann bjóst við lengri tíma en Michael Carrick stýrði æfingu liðsins í dag.
Leikmenn United reyndu svo að koma sér fljótt af æfingasvæðinu til að sleppa við að ljósmyndarar næðu góðum myndum af þeim.
Mourinho er að yfirgefa borgina en nokkrar mínútur eru síðan að hann tæmdi hótelherbergið sitt á Lowry hótelnu. Þar bjó hann í tvö og hálft ár, hann vildi ekki kaupa sér íbúð í borginni.
Ljósmyndarar sem Mourinho spjallaði stuttlega við sögðu að stjórinn hefði verið í góðu skapi.
Myndir af þesssu eru hér að neðan.