Jose Mourinho var í dag rekinn frá Manchester United eftir slæmt gengi í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Mourinho var lengi orðaður við sparkið en United hefur ekki þótt sannfærandi á þessu tímabili.
Portúgalinn kvartaði mikið á undirbúningstímabilinu og sagðist ekki vera með nógu sterkan leikmannahóp.
United tapaði nokkuð sannfærandi 3-1 gegn Liverpool um helgina sem reyndist síðasti naglinn í kistu Mourinho.
Tómas G Jóhannsson, knattspyrnuaðdáandi, spáði því í júlí að Mourinho yrði rekinn eftir ‘skell’ á Anfield í desember.
Tómas spáði því að Mourinho yrði rekinn þann 17. desember en hann var svo rekinn degi seinna.
Einnig taldi Tómas að United yrði í níunda sæti deildarinnar fyrir jól en liðið er í því sjötta þó aðeins tveimur stigum frá níunda sætinu.
Hann nefndi svo að United myndi rétt svo komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar sem reyndist einnig rétt.
Mögnuð spá sem var næstum því fullkomin.
United verður í 9unda sæti
Rétt slefa í 16 liða
Mourinho rekinn 17 desember eftir skell á Anfield.
Calling it— Tómas G Jóhannsson (@TomasJohannss) 30 July 2018