Manchester United hefur staðfest að búið sé að reka Jose Mourinho frá félaginu.
Mourinho er rekinn frá United eftir slæmt tap gegn Liverpool á sunnudag, stjórn United hefur fengið nóg. Mourinho er á sínu þriðja tímabili með félagið en gengi liðsins í ár hefur verið slakt. United er langt frá toppliðum deildarinnar en Mourinho vann þrjá titla á fyrstu leiktíð sinni, síðan þá hefur hallað undan fæti.
Mourinno mætti á æfingasvæði félagsins klukkan 9:02 í morgun, hann var eins og alltaf keyrður á svæðið á glæsilegum Jaguar bíl. 44 mínútum síðar var hann búinn að funda með Ed Woodward, stjórnarformanni félagsins sem rak hann úr starfi.
Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports hefur ritað ítarlegan pistil um málið sem má lesa hér að neðan.
Þú verður að skoða byrjun tímabilsins, ég taldi að það væri óumflýjanlegt að Mourinho yrði ekki stjóri félagsins á næstu leiktíð.
Það voru mörg vandamál á milli hans og stjórnar félagsins, svo hefur samband hans við stórstjörnur félagsins orðið slæmt.
Þetta sáu allir, hann tók fyrirliðabandið af Paul Pogba, og í fyrsta lagi gaf honum það. Þetta leit út fyrir að vera búið í upphafi tímabils, það var áður en bolta var sparkað.
Svo eru það úrslitin og frammistöðurnar, þetta er ekki það sem Manchester United býst við.
Leikmannahópurinn sem hann hafði er ekki sá besti í sögu United, þeir eiga samt ekki að vera svona langt á eftir liðunum sem berjast um titla þetta árið
Það verður mikið rætt um það að hann hafi ekki fengið miðvörð í sumar, ég held að hlutirnir eigi samt ekki að klúðrast vegna þess. Þú verður að halda áfram og nýta aðra kosti, það er hluti af starfinu.
Ég tel aldrei að vandamálin séu jafn stór og fólk heldur, fólk talar um að United þurfi að eyða 300 eða 400 milljónum punda í leikmenn.
Þetta er aldrei jafn slæmt og er talið, ég hef verið hjá Liverpool þar sem fólk taldi að allt liðið og stjórinn yrðu að fara. Stundum geta tveir eða þrír leikmenn breytt félagi.
Hver sá sem tekur við, þá er hægt að ná miklu meira úr mörgum af þessum leikmönnum. Þetta er ekki lélegur hópur, hann gæti verið sterkari á sumum sviðum, það eru samt mjög góðir leikmenn þarna
Ég held að Mourinho hafi ekki náð því sem hægt er að ná úr þessum hópi, nýr stjóri mun vonast til að geta það. Svo koma tveir eða þrír leikmenn inn, ef þeir virka þá er United ekki langt frá toppnum.
Það er rætt um þessa leikmenn, þetta eru leikmenn sem hafa ekkert gert í treyju Manchester United. Það er talað um að þeir hafi verið vonbrigði fyrir Mourinho, þeir eru fyrst og fremst vonbrigði fyrir sjálfa sig.
Ég held að þeir séu ekki að leika sér að því að spila illa, það er aldrei þannig, þó að fólk hafi efast um að þeir spili fyrir stjórann.
Það eru margir leikmenn sem Mourinho hefur fengið, sem hafa ekki staðið sig. Þessir tveir ættu frekar að horfa inn á við, frekar en að horfa á Mourinho.
Getur nýr stjóri fengið meira frá þeim? Það gerist oft, nýr stjóri kemur inn og frammistaða leikmanns breytist.
Pósturinn frá Paul Pogba í dag eftir að tilkynnt var að Mourinho var rekinn, var ekki skynsamlegur. Sama hver sendi hann út, hann skynjaði ekki andrúmsloftið.
Hann á að virða það sem hefur gerst, þetta var stjórinn sem fékk hann eftir að Sir Alex Ferguson og félagið hafði látið hann fara.
Það verða leikmenn sem eru sáttir í klefanum, það eru ekki alltaf allir sem ná saman við stjórann. Það var augljóst í þessu samhengi, en þetta var heimskulegt hjá Pogba.
Ég held að Laurent Blanc myndi henta vel, hann hefur stýrt stórum liðum og landsliðinu. Þú hugsar um vandamálin með Martial og Pogba, það er í huga stjórnarinnar. Er hægt að ná þeim á flug?
Spurningin er: Mun Laurent Blanc sem hefur stýrt stórum liðum, sætta sig við að vera tímabundinn stjóri
Kannski gefur það honum tækifæri á að fá starfið til framtíðar, félagið leitar að framtíðar manni.
Stjórnin er samt að hugsa til Mauricio Pochettino, það er það sem ég held.