Eftir að José Mourinho var rekinn frá Manchester United í morgun velta stuðningsmenn félagsins fyrir sér hver tekur við eftir tímabilið.
Fastlega er búist við því að Michael Carrick verði stjóri United til loka tímabils, eða þar til nýr stjóri verður ráðinn til frambúðar.
Veðbankar þykja oft gefa ágæta mynd af því sem koma skal og hefur breska blaðið Mirror tekið saman lista yfir þá stjóra sem þykja líklegastir til að taka við eftir tímabilið, samkvæmt veðbönkum.
1. Zinedine Zidane, líkur: 4/1
Zidane er án starfs eftir að hafa hætt með Real Madrid í vor. Vann þrjá Meistaradeildartitla í röð með spænska stórliðinu.
2. Antonio Conte, líkur: 5/1
Conte náði fínum árangri með Chelsea en hætti með liðið í vor. Stýrði þar áður ítalska landsliðinu og Juventus með góðum árangri.
3. Mauricio Pochettino, líkur: 5/1
Sá stjóri sem forráðamenn United eru hvað helst sagðir vilja. Hefur gert frábæra hluti með Tottenham á undanförnum árum en spurning hvað þarf til að lokka hann frá félaginu.
4. Laurant Blanc, líkur: 14/1
Blanc er stuðningsmönnum United að góðu kunnur enda spilaði hann með félaginu árin 2001 til 2003. Blanc stýrði PSG frá 2013 til 2016 en hefur ekki stýrt neinu liði síðan þá.
5. Arsene Wenger, líkur: 22/1
Eitthvað yrði nú sagt ef Wenger myndi mæta á Old Trafford sem stjóri Manchester United. Hætti með Arsenal í vor eftir rúm tuttugu ár í starfi. Í sannleika sagt verður þetta að teljast ólíklegt en ótrúlegir hlutir hafa gerst í boltanum á undanförnum árum.
6. Leonardo Jardim, líkur: 25/1
Jardim var stjóri Monaco og náði frábærum árangri með ungt og spennandi lið. Kom liðinu í hóp bestu liða Evrópu og vann frönsku deildina vorið 2017, þrátt fyrir ótrúlegt ríkidæmi PSG. Var rekinn í haust eftir slæma byrjun í deildinni.