Cedric Soares leikmaður Southampton og Portúgals hefur verið gómaður af kærustu sinni, hann var að fara á bak við hana.
Þessi öflugi leikmaður er trúlofaður Filipa Brandão en var byrjaður að eiga regluleg samskipti við tvo strippara. Lola Berglund og Ash Holme fengu báðar skilaboð frá unnustu Cedric þar sem þær voru spurðar út í samskipti þeirra við Cedric.
Stelpurnar viðurkenndu að hafa átt í samskiptum við hann samkvæmt því sem ensk blöð segja frá. Cedric varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016.
Unnusta hans komst í síma hans þar sem hann var að tjá stelpunum tveimur hversu huggulegar þær væru.
Myndir af Cedric og unnustu hans og stelpunum sem hann var að reyna við má sjá hér að neðan.