Jose Mourinho er ekki lengur þjálfari Manchester United en hann var rekinn frá félaginu í dag.
Mourinho starfaði hjá United í þrjú ár en eftir slæmt gengi á leiktíðinni fékk stjórn félagsins nóg.
Margir leikmenn vildu sjá félagið reka Mourinho en hann lenti í rifrildum við nokkra leikmenn á þessu ári.
Það eru þó fjórir leikmenn sem voru enn með Mourinho í liði og hefur Manchester Evening News nafngreint þá.
Það eru þeir Ashley Young, Nemanja Matic, Marouane Fellaini og Romelu Lukaku en þeir vildu halda Portúgalanum.
Lukaku tjáði sig til að mynda um Mourinho í síðasta mánuði og sagði að hann myndi hlaupa í gegnum vegg fyrir stjóra sinn.
,,Ég er einn af þeim sem eru í uppáhaldi hjá honum já. Því ég myndi hlaupa í gegnum múrvegg fyrir hann – og hann veit það,“ sagði Mourinho.
Leikmenn á borð við Paul Pogba og Anthony Martial vildu þó sjá Mourinho fara og fengu ósk sína uppfyllta að lokum.