Gengi Manchester United á leiktíðinni hefur valdið stuðningsmönnum gríðarlegum vonbrigðum. Liðið tapaði 3-1 fyrir Liverpool í gær, er í 6. sæti í deildinni og ærið verkefni er fyrir höndum ef liðið ætlar sér að ná einu af fjórum efstu sætunum.
United er 11 stigum frá Chelsea sem er í fjórða sæti og heilum 19 stigum frá toppliði Liverpool. Og aðeins fjögur lið; Cardiff, Southampton, Fulham og Burnley hafa fengið á sig fleiri mörk en United.
Stuðningsmenn United hafa margir kallað eftir því að Jose Mourinho verði rekinn og bíða margir eftir fréttum frá Englandi þess efnis. En Mourinho verður ekki rekinn strax ef marka má umfjöllun breska blaðsins Mirror í dag. Fyrir því eru þrjár ástæður helst nefndar og eru þær tíundaðar hér að neðan.
Stjórn Manchester United setur þá kröfu að liðið komist í Meistaradeild Evrópu á hverri leiktíð. Chelsea er með 36 stig í 4. sæti og United með 27 stig í 6. sæti. Þar sem tímabilið er enn ekki hálfnað getur margt gerst. Mirror telur að stjórn United muni í það minnsta gefa Mourinho tækifæri fram yfir leikina gegn PSG í Meistaradeildinni. Þá verða línur farnar að skýrast enn frekar í deildinni heima.
Eins og staðan er núna, rétt fyrir jól, er ekki margt annað í stöðunni en að Michael Carrick, aðstoðarstjóri United, myndi taka við stjórnartaumunum. Allir stórlaxarnir í stjóraheiminum eru við störf annars staðar og enginn mun stökkva frá borði fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar. En einhverjir stjórar eru að vísu á lausu og hefur einn sérstaklega verið nefndur til sögunnar. Mirror kemur að honum í þriðja liðnum.
Zinedine Zidane er á lausu eftir að hafa hætt með Real Madrid í vor. Hann hefur verið orðaður við United ítrekað að undanförnu. Svo virðist hins vegar vera sem stjórn United vilji ekki ráða Zidane þar sem óvissa ríkir um hvort hann sé rétti maðurinn fyrir félagið. Ef til vill skrýtið í ljósi þess magnaða árangurs sem Zidane náði hjá Real Madrid þar sem hann vann Meistaradeildina þrjú ár í röð.