Liverpool endurheimti toppsætið í ensku úrvalsdeildinni í gær er liðið fékk Manchester United í heimsókn. Leikurinn á Anfield var mjög fjörugur en fyrsta mark leiksins skoraði Sadio Mane fyrir heimamenn eftir góða sendingu Fabinho.
United tókst þó að jafna fyrir lok fyrri hálfleiks er Jesse Lingard kom boltanum í netið eftir mistök Alisson Becker í marki Liverpool. Í síðari hálfleik kom Xherdan Shaqiri við sögu hjá Liverpool og átti hann eftir að breyta leiknum.
Shaqiri skoraði tvö mörk með stuttu millibili og náði að tryggja Liverpool 3-1 sigur á erkifjendum sínum. Bæði skot Shaqiri fóru af leikmanni United og í netið en útlit er fyrir að hann fái bæði mörkin skráð á sig.
United er í miklum vandræðum og tímarnir með Sir Alex Ferguson eru fortíðin, sá gamli var mættur í stúuna og svipur hans sagði alla söguna.
Félagið er í brekku sem er erfitt að sjá fyrir endann á.