Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus á Ítalíu, er vinsæll um allan heim og á marga aðdáendur.
Ronaldo hefur lengi verið talinn einn besti leikmaður heims, ef ekki sá besti.
Lögreglunni í Frakklandi brá heldur í dag er yfir 500 grömm af eiturlyfjum voru gerð upptæk.
Um var að ræða eiturlyf upp á 4000 þúsund evrur eða um 500 þúsund íslenskar krónur.
Á umbúðunum mátti óvænt sjá nýlega mynd af Ronaldo þar sem hann sést í treyju Juventus.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem glæpamenn nota andlit knattspyrnumanna á pakkningum eiturlyfja en Lionel Messi hjá Barcelona lenti í því sama í fyrra.
Ronaldo er vanur að hafa andlit sitt framan á dýrum merkjavörum en hérna er gengið aðeins of langt!
Hér má sjá mynd af pakkningunni.