Árið er senn á enda og hefur verður viðburðaríkt fyrir íslenska knattspyrnumenn og Gylfi Þór Sigurðsson er í sérflokki að mati þjóðarinnar. Álitsgjafar DV settu saman fimm manna lista yfir bestu knattspyrnumenn Íslands árið 2018 og lesendur fengu svo að kjósa. Rúmlega 1.200 Íslendingar tóku þátt í könnuninni og fékk Gylfi meira en helming allra atkvæða. Jafnt var á meðal þeirra sem eru í öðru og þriðja sæti á listanum.
1 sæti: Gylfi Þór Sigurðsson – 52 prósent
Lesendur DV voru í miklum meirihluta sammála um að Gylfi væri langbesti knattspyrnumaður Íslands árið 2018. Gylfi hefur verið í mögnuðu formi á seinni hluta ársins, hann hefur verið besti leikmaður Everton á síðustu mánuðum, liðið hefur spilað vel og þar hefur Gylfi notið sín, eins og hann gerir svo vel. Gylfi skoraði annað af tveimur mörkum Íslands á HM í Rússlandi en markið kom í naumu tapi gegn Króatíu. Gylfi var að glíma við meiðsli í aðdraganda mótsins en náði sér og sýndi fína takta. Gylfi hefur verið besti knattspyrnumaður Íslands í mörg ár og ekkert virðist geta komið í veg fyrir að svo verði í nokkur ár til viðbótar.
2–3 sæti: Alfreð Finnbogason – 16 prósent
Alfreð hefur náð að gera magnaða hluti á árinu miðað við öll þau áföll sem dunið hafa á honum, en endalaus meiðsli hafa hrjáð þennan öfluga leikmann. Framherjinn hefur aðeins náð að taka þátt í þrettán leikjum með Augsburg í þýsku úrvalsdeildinni, hann meiddist í upphafi árs og missti að mestu af seinni hluta tímabilsins. Hann náði heilsu fyrir heimsmeistaramótið þar sem hann skoraði sögufrægt mark, fyrsta mark Íslands á HM gegn Argentínu. Alfreð glímdi aftur við meiðsli eftir mótið en náði bata, hann hefur síðan þá skorað sjö mörk í sjö leikjum með Augsburg í deild þeirra bestu í Þýskalandi. Alfreð lék sjö landsleiki á þessu ári og skoraði í þeim fjögur mörk.
2–3 sæti: Jóhann Berg Guðmundsson – 16 prósent
Besti leikmaður Burnley árið 2018, Jóhann Berg Guðmundsson, hefur átt góðu gengi að fagna á árinu. Hann var á flugi með Burnley fyrri hluta árs þegar liðið náði frábærum árangri, endaði í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og sótti Evrópusæti. Jóhann hefur á síðustu árum stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaður landsliðsins og átti fína spretti með landsliðinu á árinu þrátt fyrir slakt gengi. Á nýrri leiktíð með Burnley hefur Jóhann náð að sýna góða takta þrátt fyrir dapurt gegn liðsins sem nú berst nú fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni, en Jóhann gerði nýjan samning við félagið í sumar.
4 sæti: Kári Árnason – 10 prósent
Ef eingöngu frammistaða með íslenska landsliðinu væri skoðuð, þá væri Kári líklega efstur á svona lista. Honum virðist takast það ár eftir ár að koma íslensku knattspyrnuáhugafólki á óvart. Kári var mjög góður með landsliðinu í ár og mikilvægi hans kemur í ljós, leik eftir leik. Kári lék með Aberdeen fyrri hluta ársins, hann ætlaði svo að koma heim í Pepsi-deildina með Víkingi. Góð frammistaða hans á HM tryggði honum hins vegar samning í Tyrklandi. Kári leikur nú með Gençlerbirliği og hefur staðið sig vel þegar hann hefur spilað. Kári er 36 ára en allt stefnir í að hann verði áfram lykilmaður í landsliðinu á næsta ári.
5 sæti: Aron Einar Gunnarsson – 6 prósent
Fyrirliði landsliðsins hefur átt sveiflukennt ár, meiðsli hafa hrjáð hann en framlag Arons Einar, þegar hann er heill heilsu, er hreint ótrúlegt. Frammistaða hans með Cardiff á síðustu leiktíð var frábær, hann átti stóran þátt í að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Hann lagði allt í sölurnar til að geta tekið þátt í Heimsmeistaramótinu í Rússlandi, hann glímdi við alvarleg meiðsli en setti ferilinn að einhverju leyti í hættu með því að spila. Þar tókst Aroni að komast vel frá sínu og hefur nú náð sér af meiðslum og snúið til baka með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni. Gengi Cardiff hefur heldur betur breyst með endurkomu Arons, liðið sem virtist svo gott sem fallið úr deildinni eftir nokkra leiki er komið í fín mál eftir að fyrirliði Íslands sneri aftur.