Ousmane Dembele, leikmaður Barcelona á Spáni, hefur verið í umræðunni undanfarnar vikur.
Dembele hefur ekki þótt sýna mikinn metnað eftir að hafa skrifað undir hjá spænska félaginu síðasta sumar.
Hann hefur mætt of seint á æfingar og vill þá ekki læra spænska tungumálið sem gæti reynst mikilvægt.
Nú hefur Barcelona sent Dembele skilaboð um að hann megi ekki slökkva á síma sínum svo það sé hægt að ná í hann.
Dembele er yfirleitt með símann á ‘silent’ og notar þá afsökun er hann svarar ekki hringingum félagsins.
Hann var sektaður um 90 þúsund pund fyrr í mánuðinum eftir að hafa mætt tveimur tímum of seint á æfingu.
Afsakanirnar munu ekki bjarga Dembele lengur en hann þarf að breyta um hegðun vilji hann ná árangri hjá félaginu.