Jose Mourinho, stjóri Manchester United, ræddi við Sky Sports í kvöld eftir 3-1 tap gegn Liverpool á Anfield.
Mourinho viðurkennir að Liverpool hafi verið sterkara sóknarlega en vill meina að sínir menn hafi verið með stjórn á leiknum í dágóðan tíma.
Xherdan Shaqiri skoraði tvö síðustu mörk Liverpool í síðari hálfleik en bæði skotin fóru af leikmanni United og í netið.
,,Þeir eru með sterkt lið og þeir sýndu það í dag. Það er erfitt að fá á okkur þessi mörk þegar við fáum þau á okkur,“ sagði Mourinho.
,,Erfiðasti tími leiksins voru fyrstu 20 mínúturnar þar sem við réðum ekki við hraða þeirra eða pressu. Eftir það þá náðum við stjórn á leiknum.“
,,Þeir sóttu mun meira en við og áttu fleiri horn en þeir voru pirraðir og hafsentarnir voru að skjóta á markið af 30 metrum og í stúkuna.“
,,Ef þú vilt tala um heppni þá verðum við að tala um annað og þriðja markið þeirra.“
,,Markið okkar, Lukaku átti góða fyrirgjöf og Jesse Lingard var mættur í hættulega stöðu og skorar. Markvörðurinn þeirra gerir hálf-mistök eins og ég kýs að kalla það.“
,,Auðvitað getum við ekki unnið titilinn en við getum endað í fjórða sætinu. Það verður ekki auðvelt en auðvitað endum við í efstu sex sætunum. Það besta sem við getum reynt við er fjórða sætið.“
Blaðamaður Sky Sports spurði Mourinho svo hvort hann væri með stuðning allra leikmannana. Hann tók því ekki vel.
,,Ertu að spyrja mig hvort leikmennirnir séu óheiðarlegir? Ég tel að þú sért að segja mér það. Fótboltamenn gefa allt í sölurnar á hverjum degi.“
,,Það skiptir engu máli hver þjálfarinn er, þetta er fyrir félagið og stuðningsmennina. Til að sýna félaginu virðingu.“