Xherdan Shaqiri, leikmaður Liverpool, skoraði tvennu í dag er liðið mætti Manchester United.
Shaqiri byrjaði leikinn á bekknum í dag en kom við sögu í síðari hálfleik er staðan var 1-1 á Anfield.
Svissnenski landsliðsmaðurinn skoraði svo tvö mörk fyrir Liverpool með stuttu millibili og vann liðið 3-1 sigur.
Gary Neville, sérfræðingur Sky Sports, gagnrýndi Shaqiri harkalega fyrr á tímabilinu og sagðist ekki vera aðdáandi.
Neville sagði á meðal annars að Shaqiri hafi haft neikvæð áhrif á Stoke á síðustu leiktíð og að metnaðurinn væri ekki til staðar.
Jamie Carragher, kollegi Neville hjá Sky Sports, ræddi við Shaqiri eftir leikinn í dag.
,,Þú breyttir gang leiksins í dag og ég veiti þér verðlaun fyrir að vera maður leiksins. Gary Neville ætlaði að koma hingað en hann vildi ekki hitta þig,“ sagði Carragher við Shaqiri.
Vængmaðurinn hafði gaman að því og sendi Neville stutt skilaboð: ,,Heilsaðu Gary frá mér,“ sagði Shaqiri léttur.