Hlaðvarpsþátturinn, 90 mínútur hefur hafið göngu sína en um er að ræða þátt sem Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is stýrir.
Rætt verður um fótbolta við áhugaverða gesti í vetur, farið verður um víðan völl.
Næsti gestur þáttarins er Theodór Elmar Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu.
Elmar tók þátt í leiðinlegu verkefni fyrr á árinu er Ísland mætti Sviss í fyrsta leik undir stjórn Erik Hamren.
Eins og flestir muna gat íslenska liðið ekkert í þeim leik og höfðu heimamenn betur örugglega, 6-0.
Elmar hefur aldrei upplifað eins tilfinningu á vellinum en það var í raun ómögulegt að spila þann leik.
,,Það var stórfurðulegt. Þetta var tilfinning sem maður hefur aldrei upplifað með landsliðinu,“ sagði Elmar.
,,Þetta var svona uppgjafar tilfinning. Ég koma þarna inn á tvíefldur að sanna mig en svo þegar maður kom inná var eins og það væri blý í fótunum á manni.“
,,Maður gat ekki hreyft sig og menn löbbuðu framhjá manni, eitthvað sem gerist aldrei með landsliðinu heldur.“
,,Ég hef aldrei upplfiað þessa tilfinningu inni á velli, það slökknaði á öllum kröftum hjá manni og maður komst aldrei nálægt þeim, þeir héldu boltanum eins og þeir væru besta lið í heimi.“
,,Auðvitað er þetta sterkt lið en það er ekki 6-0 munur á Sviss og Íslandi. Þetta var sérstakt. Ég var eiginlega bara tekinn með eftir þessa meiðslahrinu sem var komin.“
,,Maður lítur á þennan leik sem svona one off, þetta var bara slys.“
Meira:
Bróðir Elmars tók sitt eigið líf: ,Ég myndi ekki óska þess upp á minn helsta óvin að ganga í gegnum lífið, líðandi svona“
Elmar eyddi um efni fram og lifði á núðlum: ,,Það var oftar en einu sinni að maður átti ekkert til“