Chelsea vann mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið heimsótti Brighton í hörkuleik.
Chelsea var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skoraði liðið tvö mörk. Eden Hazard var allt í öllu og skoraði það seinna og lagði upp fyrra á Pedro.
Solly March kom Brighton inn í leikinn í síðari hálfleik með eina marki Brighton en það dugði ekki til og lokastaðan, 2-1.
Brighton pressaði stíft að marki Chelsea undir lokin en tókst ekki að koma boltanum í netið og tap niðurstaðan.
Arsenal lenti í basli gegn Southampton en heimamenn þar sem tvær tvennur voru í boði.
Southampton komst tvisvar yfir með mörkum Danny Ings en Henrikh Mkhitaryan svaraði fyrir Arsenal í bæði skiptin.
Undir lok leiksins skoraði svo Charlie Austin sigurmark Southampton sem hafði betur 3-2 og tókst að stöðva Arsenal.
Arsenal hafði ekki tapað í 22 leikjum í röð fyrir viðureignina og var Southampton aðeins að vinna sinn annan leik á tímabilinu.
Brighton 1-2 Chelsea
0-1 Pedro(17′)
0-2 Eden Hazard(33′)
1-2 Solly March(66′)
Southampton 3-2 Arsenal
1-0 Danny Ings(20′)
1-1 Henrikh Mkhitaryan(28′)
2-1 Danny Ings(44′)
2-2 Henrikh Mkhitaryan(53′)
3-2 Charlie Austin(85′)