Það þurfti að stöðva leik Partizan Belgrade og Macva í gær en liðin áttust við í serbnensku úrvalsdeildinni.
Partizan fékk Macva í heimsókn í 21. umferð deildarinnar en það fyrrnefnda er að berjast á toppnum en Macva er um miðja deild.
Partizan spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en Slobodan Urosevic fékk rautt spjald á 45. mínútu í fyrri hálfleik.
Stuðningsmenn Partizan voru óánægðir með þá ákvörðun og byrjuðu að kasta snjóboltum í línuvörðinn.
Undir lok leiksins þurfti dómarinn að stöðva leikinn því aðstoðarmaður hans var að fá marga snjóbolta í bakið.
Eins og má sjá hér fyrir neðan var mikill snjór er liðin áttust við.
Partizan Belgrade fans pelting the assistant referee with snow balls ?
— talkSPORT (@talkSPORT) 15 December 2018