Theodór Elmar Bjarnason er að leita sér að nýju félagi þessa stundina en hann er samningslaus.
Elmar yfirgaf lið Elazigspor í Tyrklandi á dögunum en félagið hafði ekki tök á að borga mörgum leikmönnum laun.
Elmar staðfesti það við 433.is í dag að hann væri í viðræðum við tvö félög í næst efstu deild í Tyrklandi.
Elmar er næsti gestur í hlaðvarpsþættinum 90 mínútur hér á 433.is en þátturinn birtist síðar í dag.
Hann hefur undanfarnar vikur æft með KR hér heima og hafa sögusagnir verið um að hann væri á leið til félagsins.
Útlit er þó fyrir að Elmar haldi áfram í atvinnumennsku en hann hefur leikið erlendis síðan 2004.
Elmar á 41 landsleik að baki fyrir Ísland og hefur spilað fyrir félög eins og Celtic, Göteborg, AGF og nú síðast Elazigspor.