fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Sá son sinn í treyju Manchester United og klikkaðist: ,,Hvað í andskotanum ertu að gera í þessari treyju?“

Victor Pálsson
Föstudaginn 14. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steven Gerrard var frábær miðjumaður á sínum tíma en hann lék allan sinn feril með liði Liverpool.

Gerrard er af mörgum talinn einn besti leikmaður í sögu Liverpool en það kom aldrei til greina að hann myndi spila fyrir annað félag.

Faðir Gerrard er mikill aðdáandi Liverpool en hann sá son sinn klæðast treyju Manchester United er hann var 11 ára gamall.

Gerrard lék sér í fótbolta ásamt vini sínum sem átti United treyju merkta Bryan Robson sem var miðjumaður United á þeim tíma.

Gerrard fékk að klæðast treyjunni er þeir léku sér saman, eitthvað sem faðir hans var alls ekki hrifinn af.

,,Vinur minn átti treyju merkta Bryan Robson, þessa gömlu bláu og hvítu treyju,“ sagði Gerrard.

,,Við vorum að spila saman og ég spurði hann hvort ég mætti vera Robson í stutta stund.“

,,Ég fór úr Liverpool treyjunni og klæddi mig í Robson treyjuna. Mér leið frábærlega og klæddist henni í klukkutíma.“

,,Ég hljóp út um allt, tæklaði mikið og skoraði hetjuleg mörk. Ég þóttist vera Robson.“

,,Því miður fyrir mig þá leit pabbi minn út um gluggann og gjörsamlega klikkaðist.“

,,’Komdu þér inn núna!’ öskraði hann á mig. Ég gerði það og fékk svo að heyra það: ‘Hvað í andskotanum ertu að gera, að klæðast Manchester United treyju?“

,,Ég útskýrði að þetta væri treyja Bryan Robson. Honum gat ekki verið meira sama og sagði að ég ætti að vita betur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls